Everton veitti litla mótspyrnu á Old Trafford

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Kom Man Utd á bragðið.
Kom Man Utd á bragðið. vísir/Getty

Manchester United vann þægilegan 2-0 sigur á Everton í fyrsta leik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni.

Everton var taplaust í fjórum leikjum í röð í deildinni þegar kom að leik dagsins en lærisveinar Sean Dyche virtust ekki hafa mikla trú á verkefninu gegn Man Utd á Old Trafford því yfirburðir heimamanna voru töluverðir, þá sérstaklega í fyrri hálfleik.

Heimamenn fengu mörg færi í fyrri hálfleik og flest þeirra fékk Brasilíumaðurinn Antony en hann fór reglulega illa að ráði sínu gegn Jordan Pickford í marki gestanna. 

Skoski miðjumaðurinn Scott McTominay sá um að opna markareikninginn fyrir heimamenn en hann kom Man Utd í forystu á 36.mínútu eftir stoðsendingu Jadon Sancho og Man Utd með verðskuldaða forystu í leikhléið.

Anthony Martial kom inn af bekknum hjá Man Utd og hann sá um að tryggja sigurinn þegar hann skoraði á 71.mínútu eftir sendingu frá Marcus Rashford og afleit mistök Seamus Coleman í aðdraganda marksins.

Lokatölur 2-0 fyrir Man Utd sem tyllir sér þar með í 3.sæti deildarinnar. Everton hins vegar í 16.sæti og gæti dottið niður í fallsæti þegar umferðin klárast.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira