Lífið

Búin að eignast tví­burana

Atli Ísleifsson skrifar
Hilary Swank og Philip Schneider á Golden Globe-verðlaunahátíðinni í janúar síðastliðinn.
Hilary Swank og Philip Schneider á Golden Globe-verðlaunahátíðinni í janúar síðastliðinn. Getty

Bandaríska leikkonan Hilary Swank er búin að eignast tvíbura. Hin 48 ára leikkona greindi frá gleðitíðindunum á Instagram í gær.

„Þetta var ekki auðvelt,“ segir Swank en bætir við að þetta hafi aldeilis verið þess virði.

Leikkonan deilir mynd af sér þar sem hún heldur á dreng og stúlku og hún fylgist með sólarlaginu.

Fjölmargir frægir vinir leikkonunnar óska henni til hamingju með tímamótin, meðal annars þau Sharon Stone, Viola Davis og Jesse Tyler Ferguson.

Swank greindi frá því í október síðastliðnum að hún og eiginmaðurinn Philip Scheiner ættu von á tvíburum og að þetta væri nokkuð sem hún hefði óskað eftir mjög lengi.

Hilary Swank sló í gegn í Buffy the Vampire Slayer og The Next Karate Kid og vann svo til Óskarsverðlauna sem besta leikkona í aðalhlutverki fyrir Boys Don't Cry árið 1999 og Million Dollar Baby árið 2005.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×