Ollie Watkins skorar jafnmikið og Haaland Smári Jökull Jónsson skrifar 16. apríl 2023 13:30 Ollie Watkins hefur verið sjóðandi heitur síðustu vikurnar. Vísir/Getty Erling Haaland jafnaði markamet ensku úrvalsdeildarinnar í sigri Manchester City á Leicester í gær en annar framherji í deildinni hefur einnig verið á skotskónum undanfarið.
Aston Villa hefur átt góðu gengi að fagna síðan Unai Emery tók við liðinu í október. Síðan þá hefur liðið unnið tólf af nítján deildarleikjum og situr Villa í sjötta sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir 3-0 sigur á Newcastle í gær. Sá sem hefur fengið flestar fyrirsagnirnar á meðan á góðu gengi Villa hefur staðið er framherjinn Ollie Watkins. Watkins skoraði tvö mörk og lagði það þriðja upp í sigrinum í gær og hefur alls skorað fjórtán mörk í úrvalsdeildinni á tímabilinu. Ellefu af fjórtán mörkum Watkins hafa komið í síðustu tólf leikjum hans með Villa en Erling Haaland hefur einnig skorað ellefu mörk fyrir Manchester City í síðustu tólf leikjum sínum. Norðmaðurinn jafnaði markamet úrvalsdeildarinnar í gær með marki númer þrjátíu og tvö í úrvalsdeildinni. „Ekki hægt að ganga framhjá honum“ Í gær skoraði Watkins tvö mörk í sama leiknum í fyrsta sinn og það fyrir framan landsliðsþjálfara Englands Gareth Southgate sem var í stúkunni. Watkins hefur átt þátt í fimmtán mörkum Villa eftir HM í Katar sem er meira en allir aðrir leikmenn deildarinnar utan Haaland. „Hann gæti ekki hafa gert meira, hann var stórkostlegur,“ sagði Rio Ferdinand, sérfræðingur BT Sport, eftir leikinn í gær. „Hann spyr varnarmenn allra þeirra spurninga sem þeir vilja ekki fá. Í forminu sem hann er í er ekki hægt að ganga framhjá honum í landsliðið.“
Enski boltinn Mest lesið Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Enski boltinn Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Dagskráin í dag: Körfuboltakvöld, Karólína Lea og mun meira Sport Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Fleiri fréttir Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Sjá meira