Miðvörðurinn ungi Arna Eiríksdóttir var ekki með FH í kvöld en hún var lánuð til félagsins frá Val á lokadegi félagaskiptagluggans í síðustu viku. Aðspurður hvort ekki hefði komið til greina að leyfa Örnu að spila leikinn svaraði Pétur:
„FH spurði mig ekkert að því. Ég veit ekki hverju ég hefði svarað ef ég hefði verið spurður.“
Leikurinn var mjög opinn og skemmtilegur í fyrri hálfleik og komu nýliðar FH langt fram á völlinn gegn meisturum Vals sem skoruðu bæði mörk sín í fyrri hálfleiknum. Ásdís Karen Halldórsdóttir skoraði mörkin, það fyrra eftir slæm varnarmistök en það seinna eftir stungusendingu.
„Þær spila agressívt fram á við, pressa mikið og eru bara gott lið. Ekki lið eins og við höfum séð koma upp úr 1. deildinni. Við gátum nýtt okkur það í fyrri hálfeik en áttum að gera betur í því í seinni hálfleiknum.
Ásdís er búin að þroskast mikið hérna undanfarin ár og er að sýna alltaf meira og meira hvað hún getur. Við vitum að hún getur enn meira en þetta,“ sagði Pétur.
Pétur hefur stólað á hina 18 ára gömlu Fanneyju Ingu Birkisdóttur í markinu í upphafi móts og hún átti frábæran leik í kvöld eftir að hafa einnig haldið hreinu gegn Breiðabliki í fyrstu umferð:
„Fanney er bara góður markmaður og stóð sig vel í báðum þessum leikjum. Hún er alveg tilbúin í þetta,“ sagði Pétur, ánægður með byrjunina á mótinu. „Við erum búin að spila tvo erfiða leiki og það er frábært að hafa sex stig eftir þá, og hafa ekki fengið á sig mark.“