Heildartilboð í fyrri flokkinn, sem er verðtryggður skuldabréfa flokkur, námu tæplega 1,9 milljörðum króna að nafnvirði á bilinu 3,49%-3,68%. Ákveðið var að taka tilboðum, samtals að nafnvirði 1.280 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,61%.
Útistandandi fyrir útboð voru 26,9 milljarðar að nafnvirði að meðtöldum eigin bréfum Reykjavíkurborgar vegna viðskiptavaktar upp á 960 milljónir króna. Heildarstærð flokksins nemur 28,1 milljarði að loknu útboðinu.
Heildartilboð í RVKG 48 1, sem er verðtryggður grænn skuldabréfaflokkur, námu samtals tæplega 2,7 milljörðum króna að nafnvirði á ávöxtunarkröfunni 3,44%-3,53%.
Ákveðið var að taka tilboðum, samtals að nafnvirði 1.9 milljörðum króna á ávöxtunarkröfunni 3,50%. Útistandandi fyrir útboð voru 10,4 milljarðar að nafnvirði að meðtöldum eigin bréfum Reykjavíkurborgar vegna viðskiptavaktar upp á 800 milljónir króna.
Heildarstærð flokksins er nú 12,2 milljarðar króna að nafnverði.
Reykjavíkurborg hætti í tvígang við fyrirhugað útboð áður en kom að útboðinu sem lauk í dag. Samkvæmt fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar er áformað að taka lán fyrir allt að 21 milljarð króna að markaðsvirði, ýmist með útgáfu skuldabréfa á skuldabréfamarkaði, með beinni lántöku eða öðrum hætti.