Landsréttur staðfesti dóm Héraðsdóms Reykjavíkur frá 14. janúar árið 2022. Eigendur skemmtistaðarins, félagið Austurátt ehf, höfðaði málið í febrúarmánuði árið 2021.
Kröfðust þeir viðurkenningar á skaðabótaábyrgð ríkisins vegna lokana í samkomubanni. Ekkert hafi réttlætt það að veitingastaðaeigendur hafi mátt hafa opið, með takmörkunum þó, en skemmtistaðaeigendum gert að loka alfarið í fjóra mánuði.
Að mati Auðar Bjargar Jónsdóttur lögmanns Austuráttar hafi meðalhófs ekki verið gætt í málinu né jafnræðisregla stjórnarskrárinnar virt. Í þágildandi sóttvarnarlögum hafi ekki verið minnst á heimild til að skerða atvinnufrelsi eða loka einkareknum fyrirtækjum.
Lokanirnar voru gerðar vorið og haustið árið 2020. Samkvæmt Þórólfi Guðnasyni þáverandi sóttvarnarlækni voru skemmtistaðirnir þungamiðja smita á þeim tíma.

Þórólfur var vitni í málinu og sagði að viðbrögð íslenskra heilbrigðisyfirvalda hefðu tekið mið af viðbrögðum í öðrum löndum og samráð hefði verið haft. Þegar veiran hefði borist til landsins eftir skíðaferðalög fólks til Austurríkis hefði komið í ljós að fjöldi smita tengdist skemmtistöðum.
Ekki sýnt fram á umfang taps
Í óröskuðum héraðsdómi sagði að í ljósi þess hversu útbreidd smit voru í samfélaginu á þessum tíma telji dómurinn ekki unnt að slá því föstu að ákvarðanir ráðherra um að loka krám og skemmtistöðum hafi gengið lengra en nauðsynlegt var.
Þá hafi ríkið stofnað til ýmis konar úrræða fyrir fyrirtæki sem þurftu að loka dyrum sínum fyrir viðskiptavinum. Þá hafi Austurátt ekki brugðist við ítrekuðum áskorunum um að upplýsa um nánara umfang taps, það er fjárhæðir, og þá aðstoð sem félagið hefur fengið.
„Þá telur dómurinn jafnframt að meta verði aðgerðir stefnda í ljósi þess að með þeim var ekki aðeins stefnt að því að vernda líf og heilsu almennings hér á landi heldur var þeim einnig ætlað að hafa hemil á frekari samfélagslegum áhrifum heimsfaraldurs COVID-19 sem kom upp skjótt og breiddist hratt út,“ segir í dómnum. „Af þessum sökum verður ekki fallist á málatilbúnað stefnanda um að þær opinberu sóttvarnaaðgerðir stefnda að loka krám og skemmtistöð um á umræddu tímabili hafi ekki samræmst meðalhófsreglu.“