Fótbolti

Rúnar skoraði í þriðja leiknum í röð

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Rúnar Már Sigurjónsson í leik með íslenska landsliðinu.
Rúnar Már Sigurjónsson í leik með íslenska landsliðinu. Vísir/Vilhelm

Rúnar Már Sigurjónsson var á skotskónum fyrir FC Volunt­ari í rúmensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag er liðið vann 2-0 sigur gegn FC Botosani.

Þetta er þriðji leikurinn í röð sem Rúnar skorar í, en hann kom heimamönnum á bragðið um miðjan fyrri hálfleikinn.

Rúnar var svo tekinn af velli þegar um tíu mínútur voru til leiksloka áður en Portúgalinn Ricardinho gulltryggði sigur liðsins með marki á fjórðu mínútu uppbótartíma.

Rúnar og félagar sitja nú í öðru sæti neðri hluta deildarinnar þegar liðið hefur leikið átta leiki eftir að deildinni var skipt upp. Samtals er liðið með 33 stig, einu stigi á eftir Petrolul sem hefur leikið einum leik minna, en tvö efstu liðin úr neðri hlutanum vinna sér inn þátttökurétt í forkeppni Sambandsdeildar Evrópu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×