Fótbolti

Kerr tryggði Chelsea bikarmeistaratitilinn

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Sam Kerr fagnar marki sínu í dag.
Sam Kerr fagnar marki sínu í dag. Gaspafotos/MB Media/Getty Images

Samantha Kerr skoraði eina mark leiksins er Chelsea lagði Manchester United 1-0 í úrslitaleik FA-bikars kvenna í knattspyrnu í dag.

Leikurinn fór fram á troðfullum Wembley-vellinum í Lundúnum þar sem tæplega 80.000 manns voru mættir til að fylgjast með leiknum, en það er met í enskum kvennafótbolta.

Eins og áður sagði skoraði Samantha Kerr markið sem skildi liðin að þegar hún kom Chelsea í forystu á 68. mínútu eftir stoðsendingu frá hinni dönsku Pernille Harder.

Niðurstaðan 1-0 sigur Chelsea og liðið fagnaði því sigri í FA-bikarnum í fimmta skipti í sögu félagsins og í þriðja sinn í röð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×