Innlent

Kvöldfréttir Stöðvar 2

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Telma Lucinda Tómasson les kvöldfréttir.
Telma Lucinda Tómasson les kvöldfréttir.

Vólódímír Selenskí forseti Úkraínu réði lögum og lofum á leiðtogafundi G7 sem lauk í dag, eftir ströng fundahöld og afgerandi stuðningsyfirlýsingar vesturveldanna við Úkraínu. Selenskí þurfti ítrekað að hafna fullyrðingum Rússa um yfirráð yfir úkraínsku borginni Bakhmút á lokadegi fundarins.

Við gerum upp fundinn í fréttatímanum klukkan 18:30 og ræðum við Friðrik Jónsson sérfræðing í öryggis- og varnarmálum í beinni í myndveri.

Framkvæmdastjóri samtakanna HIV Ísland vill að íslensk stjórnvöld biðjist afsökunar á framkomu sinni gagnvart HIV-smituðum í lok síðustu aldar. Fjörutíu ár eru nú liðin frá því að þeir fyrstu greindust með HIV hér á landi; við litum inn á sátta- og minningarstund sem haldin var í dag af því tilefni, þar sem forsætisráðherra var meðal ræðumanna.

Íslenski lundastofninn er í miklum vandræðum og hefur dregist saman um 70% á síðustu 30 árum. Þróunin kemur illa við ferðaþjónustuna sem hefur markaðssett lundann sem einkennisfugl landsins.

Þá verðum við í beinni með veðurfræðingi en ekkert lát virðist á því leiðindaveðri sem verið hefur á landinu síðustu daga. Við segjum einnig frá vendingum í ruslatunnumálum Reykjavíkur og sýnum frá æsispennandi bakgarðshlaupi úti í Þýskalandi, þar sem Íslendingar eiga enn einn fulltrúa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×