Real Madrid hélt öðru sætinu með naumindum Smári Jökull Jónsson skrifar 4. júní 2023 18:31 Karim Benzema skoraði í sínum síðasta leik fyrir Real Madrid. Vísir/Getty Real Madrid gerði í dag 1-1 jafntefli við Athletic Bilbao á heimavelli í lokaumferð spænsku úrvalsdeildarinnar. Atletico Madrid rétt missti af því að hirða annað sætið af nágrönnum sínum.
Barcelona er fyrir nokkru síðan búið að tryggja sér meistaratitilinn á Spáni og sömuleiðis að mestu ljóst hvaða lið færu í Evrópukeppnir. Real Madrid var í öðru sæti deildarinnar fyrir lokaumferðina, einu stigi á undan nágrönnum sínum í Atletico. Real Madrid náði aðeins 1-1 jafntefli á heimavelli gegn Athletic Bilbao. Leikmenn Real þurftu því að bíða eftir úrslitum í leik Atletico til að sjá hvort liðið héldi öðru sætinu. Oihan Sancet kom Athletic Bilbao yfir í fyrri hálfleik en Karim Benzema jafnaði úr víti fyrir Real á 72. mínútu í sínum síðasta leik fyrir félagið. Angel Correa og Antoine Griezmann fagna eftir mark Correa í dag.Vísir/Getty Angel Correa leit lengi vel út fyrir að verða frelsari Atletico í dag. Hann kom liðinu í 2-1 gegn Villareal eftir að Nicolas Jackson hafði komið heimaliðinu yfir strax eftir níu mínútna leik. Jorge Pascual Medina jafnaði hins vegar fyrir Villareal á lokaandartökum leiksins og Atletico náði því ekki stigunum þremur sem liðið þurfti til að ná öðru sætinu af Real Madrid. Real Sociedad endaði í fjórða sæti deildarinnar sem færir liðinu sæti í Meistaradeildinni að ári. Villareal og Real Betis fara í Evrópudeildina og þá tryggði Osasuna sér sæti í Sambandsdeildinni með 2-1 heimasigri á Girona.
Spænski boltinn Mest lesið Uppgjörið: Ísland - Tyrkland 83-71 | Ísland tryggði sér sæti á EM fyrir fullri höll Körfubolti Segjast ekki eiga pening og konunum fórnað Handbolti Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Enski boltinn Uppgjörið: Slavia Prag - Valur 22-22 | Valskonur í undanúrslit EHF-bikarsins Handbolti Segja Bandaríkin ekki tilbúin fyrir HM og Ólympíuleika Sport Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah Enski boltinn Fyrsta íslenska tvennan í frönsku deildinni í meira en 42 ár Fótbolti „Við þurfum annan titil“ Enski boltinn Íslendingur meðal yngstu markaskorara í sögu Evrópukeppnanna Fótbolti Fleiri fréttir Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Góðir útisigrar hjá PSG og Juventus „Við þurfum annan titil“ Öruggur sigur Akureyrarkvenna í Lengjubikarnum Magnaðir Bæjarar áfram í toppmálum Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Jöfnuðu erkifjendurna að stigum á toppnum Tap gegn botnliðinu eftir sigurinn á Víkingum Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Mikael með Mo Salah frammistöðu í sigri Ísak tryggði jafntefli á síðustu stundu Vann Arsenal og tók síðan bara lestina heim Áfall fyrir Napoli í titilbaráttunni Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah Íslendingur meðal yngstu markaskorara í sögu Evrópukeppnanna Enn á lyfjum eftir súr töp á ferlinum Fyrsta íslenska tvennan í frönsku deildinni í meira en 42 ár Framtíðaráform Laugardalsvallar kynnt á ársþingi KSÍ Glæsimörk á Kanarí tryggðu toppsætið Mark Martinez lyfti Inter á toppinn „Eigum skilið að finna til“ Stefnir í alvöru titilbaráttu á Spáni Asensio hetjan í endurkomu Villa Þrenna Óla Vals í stórsigri Blika Magnaður Hákon tryggði Lille stigin þrjú Góður sigur Vestra og Fram tapaði gegn Lengjudeildarliði Sjá meira