Postecoglou náð samkomulagi við Tottenham Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. júní 2023 11:30 Ange Postecoglou með skoska bikarinn sem Celtic vann eftir sigur á Inverness. getty/Richard Sellers Fátt virðist geta komið í veg fyrir að Ange Postecoglou verði næsti knattspyrnustjóri Tottenham.
Spurs hefur verið í stjóraleit síðan Antonio Conte hætti hjá félaginu í mars. Cristian Stellini stýrði liðinu í nokkrum leikjum og Ryan Mason kláraði svo tímabilið með því. Postecoglou hefur gert frábæra hluti með Celtic síðan hann tók við liðinu fyrir tveimur árum. Í vetur vann Celtic þrefalt heima fyrir. Postecoglou er eftirsóttur en svo virðist sem Tottenham hafi unnið kapphlaupið um hann. Samkvæmt the Guardian hefur hann náð munnlegu samkomulagi við félagið um tveggja ára samning með möguleika á árs framlengingu. Þegar Spurs hefur náð samkomulagi við Celtic um bætur verður hægt að ganga frá ráðningunni á Postecoglou. Sjálfur vildi hinn 57 ára Postecoglou ekkert tjá sig um áhuga Tottenham eftir úrslitaleik skosku bikarkeppninnar um helgina. „Ég skulda vinum mínum og fjölskyldu það að njóta þessarar stundar. Ég skil af hverju þú ert að spyrja mig að þessu en frá mínu sjónarhorni verðskulda ég það að njóta stundarinnar,“ sagði Postecoglou. Áður en Postecoglou tók við Celtic þjálfaði hann Yokohama í Japan. Hann er fæddur í Grikklandi en uppalinn í Ástralíu. Hann þjálfaði ástralska landsliðið á árunum 2013-17.
Enski boltinn Mest lesið Látnir gista líka á æfingasvæðinu Enski boltinn Meistarinn gæti þurft að slá út tvo nafna sína á leiðinni í úrslit Sport 76ers sóttu sigur úr Garðinum Körfubolti Dagskráin í dag: Íslandsmeistarar og fótbolti Sport Fimm hlutu dóm fyrir ólætin í Amsterdam Fótbolti Botnliðin eiga von og meistararnir geta fallið Fótbolti Risaleikur Wembanyama dugði ekki til Körfubolti Amorim hissa á fólkinu í kringum Rashford Fótbolti „Besti íþróttamaður Íslands gleymdist“ Sport Orðinn pirraður á að ná ekki að bæta met og tíminn að renna út Sport Fleiri fréttir Látnir gista líka á æfingasvæðinu Rooney og Lampard mætast í fyrsta sinn sem þjálfarar Segir slæmt gengi City ekki Haaland að kenna Liverpool sjö sinnum áður verið toppliðið um jólin Alex Iwobi bregður sér í jólasveinabúning og opnar ókeypis búð Músaskítur í leikhúsi draumanna Klopp sýndi Red Bull áhuga þegar hann var enn þjálfari Liverpool Manchester United skoðar Malasíuferð strax eftir tímabilið Tækifæri að opnast fyrir Benóný hjá Stockport Landaði forstjórastarfi hjá Forest eftir að Rómverjar ruddu henni burt Dauðþreyttur á sömu spurningum: „Fólk heldur að það sé hægt að ýta á takka“ Algjört áfall fyrir Arsenal og Saka Entist ekki lengi í fyrsta þjálfarastarfinu „Allt er svo erfitt“ Látnir æfa á jóladag Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Útsalah á mörkum í Lundúnum Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Liverpool liðið ferðast mest yfir jólin Jackson komst upp fyrir Eið Smára Arsenal valtaði yfir Crystal Palace Haaland: Ég hef ekki verið nógu góður Guardiola: Við erum í vandræðum með að skora Lengi getur vont versnað hjá Man. City „Orð geta ekki lýst því hversu eyðilagður ég er“ Englendingar syrgja mann úr heimsmeistaraliðinu frá 1966 Rice og Calafiori klárir en Crystal Palace verður án Eze Dele Alli ekki í leikformi og farinn frá Everton Áfall bætist við ógöngur Man. City Króatíski metalhausinn á að bjarga málunum Sjá meira