Lagið er hluti af EP plötu sem er væntanleg í næsta mánuði. Róshildur fékk að láni texta Ólafs Hauks Símonarsonar um fólkið í blokkinni, úr samnefndum söngleik, og setur hann í nýjan búning í laginu. Blaðamaður ræddi við Róshildi, sem heitir fullu nafni Anna Róshildur Benediktsdóttir Bøving.
Hægt er að hlusta á lagið í spilaranum hér að neðan:
Innblástur frá uppáhalds plötunni
„Fyrir rúmlega þremur árum var ég oft að leika mér að því að taka texta sem mér þótti skemmtilegir eða fallegir og spinna nýjar laglínur og útsetningar af þeim.
Geisladiskurinn Fólkið í blokkinni eftir Ólaf Hauk var uppáhalds platan mín sem barn svo einn daginn varð titillagið fórnalamb þessara tilrauna hjá minna. Úr því kom eins konar kór útsetning sem svo bara fékk að bíða í skúffunni.“
Einn daginn ákvað Róshildur svo að skoða lagið aftur.
„Þá skellti ég þessu inn í forritið Ableton og fór að byggja syntha í kringum raddirnar. Upprunalegu raddirnar má enn má heyra í introi, millikafla og outroi.
Svo nú þremur árum seinna er ég að setja saman lítið verk í formi EP plötu sem fjallar að mestu um mitt eigið tilfinningalíf og krísur.
Þá allt í einu var ekki annað hægt en að hafa þetta lag með. Það dregur saman hin lögin og setur þau í samhengi. Að við búum öll í sömu blokk? Þetta lag er dálítil tragíkómík. Textinn er fyndinn en þegar að hann er settur í svona melankólískan hljóðbúning verður hann dramatískur.“
Það er ýmislegt spennandi á döfinni hjá þessari upprennandi tónlistarkonu.
„Fyrst og fremst ætla ég að koma EP plötunni út. Ég er mjög spennt að koma þessu frá mér og út í raunveruleikann. Í sumar flyt ég efnið svo á sviði, til dæmis á hátíðunum LungA á Seyðisfirði og Útkalli á Flateyri. Ég hlakka mikið til að þjálfa framkomuvöðvann og láta lögin lifna við á sviði.“
Hér má hlusta á Róshildi á streymisveitunni Spotify.

Käärijä á toppnum
Finnski Eurovision söngvarinn Käärijä trónir aftur á toppi Íslenska listans á FM með hið gríðarlega vinsæla lag Cha Cha Cha. Þá stekkur Diljá upp um átta sæti á milli vikna og situr nú í öðru sæti með lagið sitt Crazy. Emmsjé Gauti er hástökkvari vikunnar á Íslenska listanum en Þjóðhátíðarlagið hans Þúsund hjörtu er komið í áttunda sæti listans.
Lög Íslenska listans:
Íslenski listinn á Spotify: