Fótbolti

Lúxemborg hafði sætaskipti við Ísland

Hjörvar Ólafsson skrifar
Gerson Rodrigues var á skotskónum fyrir Lúxemborg. 
Gerson Rodrigues var á skotskónum fyrir Lúxemborg.  Vísir/Getty

Lúx­em­borg skaust upp í þriðja sæti J-riðils­ í unankeppni EM 2024 í fótbolta karla með 2-0 sigri sínum gegn Liechten­stein í leik liðanna sem fram fór í Lúx­em­borg í dag.

Það voru Daniel Sin­ani og Ger­son Rodrigu­es sem skoruðu mörk Lúxemborgar í leiknum. Þessi úrslit þýða að Lúx­em­borg er komið upp í þriðja sæti riðils­ins en liðið hefur fjög­ur stig líkt og Slóvakía. 

Bosn­ía Hersegóvenía og Ísland sitja svo í fjórða til fimmta sæti riðilsins með þrjú stig hvort lið eftir tvo leik en Ísland etur kappi við Slóvakíu á Laug­ar­dals­velli klukkan 18.45 í kvöld en á sama tíma leiða Portúgal og Bosnía Hersegóvanía saman hesta sína. 

Liechten­stein rekur lestina í riðlinum en liðið er án stgia eftir fyrstu þrjá leiki sína í riðlakeppninni. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×