Veður

Fínasta veður sunnan- og vestan­lands en snjó­koma norð­austan­til á morgun

Atli Ísleifsson skrifar
Gert er táð fyrir hita um og yfir tuttugu stigum á Suðurlandi um helgina.
Gert er táð fyrir hita um og yfir tuttugu stigum á Suðurlandi um helgina. Vísir/Vilhelm

Veðurstofan gerir ráð fyrir norðlægum áttum næstu daga þar sem verður væta með köflum og svalt í veðri norðan- og austanlands, en þurrt og bjart að mestu sunnan- og vestanlands og fremur hlýtt.

Gera má ráð fyrir hita á bilinu fimm til tuttugu stig að deginum í dag, svalast norðantil en hlýjast á Suðurlandi.

Í hugleiðingum veðurfræðings segir að það kólni á morgun, einkum fyrir norðan og megi búast við slyddu eða jafnvel snjókomu á fjallvegum norðaustantil.

„Mikilvægt er fyrir ferðalanga á þeim slóðum að fylgjast með veðurspám og færð á vegum. Síðan er að sjá að það veði þurrt norðaustan og austantil og eins hækki hitinn ofurlítið þegar líður á vinkuna.

Á Suður- og Vesturlandi verður líklega alveg þurrt og það mun einnig hlýna þegar líður á vikuna og eru spár að gefa til kynna hita um og yfir 20 stigum á Suðurlandi um næstu helgi. Svo það er um að gera að krossa bæði tær og fingur í von um að það rætist,“ segir á vef Veðurstofunnar.

Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag og miðvikudag: Norðlæg átt 5-13 m/s. Rigning eða súld norðan- og austanlands, en þurrt og bjart að mestu um landið suðvestanvert. Hiti 5 til 15 stig að deginum, mildast sunnanlands.

Á fimmtudag og föstudag: Fremur hæg norðlæg átt. Skýjað og þurrt að kalla fyrir norðan og austan, en bjart að mestu sunnan- og vestanlands. Hlýnar lítið eitt.

Á laugardag: Líklega hæg breytileg átt með dálítilli vætu suðaustan- og austantil, en bjart að mestu suðvestanlands. Hiti víða 10 til 18 stig að deginum.

Á sunnudag: Útlit fyrir norðaustlæga átt. Skýjað fyrir austanen áfram bjart að mestu um landið vestanvert. Hlýtt í veðri, einkum sunnanlands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×