Heildartekjur einstaklinga 8,4 milljónir að meðaltali á síðasta ári Atli Ísleifsson skrifar 4. júlí 2023 11:08 Miðgildi heildartekna var hæst í Garðabæ, eða tæpar 7,9 milljónir og rúmar 7,8 milljónir króna á Seltjarnanesi. Vísir/Vilhelm Heildartekjur einstaklinga á Íslandi voru tæpar 8,4 milljónir króna að meðaltali árið 2022, eða rétt tæpar 700 þúsund krónur á mánuði.
Um er að ræða níu prósenta hækkun frá fyrra ári, en sé horft til verðlagsleiðréttingar var raunhækkunin um 0,6 prósent. Þetta kemur fram í nýjum gögnum frá Hagstofunni. Þar segir að miðgildi heildartekna hafi verið um 6,6 milljónir króna á ári, sem sýni að helmingur einstaklinga hafi verið með heildartekjur undir 554 þúsund krónum á mánuði. Hækkun miðgildis heildartekna var 10,7 prósent, en með tilliti til raunhækkunar var hækkunin 2,2 prósent. Ennfremur segir að meðaltal atvinnutekna á síðasta ári hafi verið um 5,8 milljónir, meðaltal fjármagnstekna um 0,8 milljónir króna og meðatal annarra tekna um 1,7 milljónir. Heildartekjur eru samtala atvinnutekna, fjármagnstekna og annarra tekna. Hæsta miðgildi tekna í Garðabæ Miðgildi heildartekna var hæst í Garðabæ, eða tæpar 7,9 milljónir og rúmar 7,8 milljónir króna á Seltjarnanesi, tæpar 7,4 milljónir króna í Fjarðarbyggð, 7,3 milljónir í Kópavogi og í Reykjavík rúmlega 6,9 milljónir króna. Fjórtán sveitarfélög höfðu miðgildi heildartekna undir 6 milljónum króna og eitt var undir 5 milljónum króna. Sé horft til meðaltals heildartekna þá er það hærra en miðgildi, tæpar 10,6 milljónir í Garðabæ og á Seltjarnanesi. Í Reykjavík er meðaltal heildartekna tæpar 8,3 milljónir króna og 8,5 milljónir króna í Hafnarfirði og Mosfellsbæ, meðan áðurnefnt landsmeðaltal er 8,4 milljónir króna. Þrettán sveitarfélög hafa meðal heildartekjur undir 7 milljónum króna og eitt þeirra undir 6 milljónum króna.
Tekjur Fjármál heimilisins Garðabær Mest lesið „Sérkennileg“ hækkun íbúðaverðs á tímum hárra vaxta Viðskipti innlent Áföstu tapparnir stóðust ekki gæðapróf Neytendur Flytur fyrirtækin vegna löggjafar um trans börn Viðskipti erlent Taylor Swift talin valda verðbólgu í Bretlandi Viðskipti erlent Leiguverð heldur áfram að hækka Viðskipti innlent Umferðarofsi stofnar vegfarendum í hættu Samstarf Leggja upp laupana í Lundúnum Viðskipti innlent „Það er verið að ríkisvæða húsnæðismarkaðinn“ Viðskipti innlent Dýr smjörvi á Egilsstöðum vekur mikla athygli Neytendur Ólöglegt bleikiefni í hveitinu Neytendur Fleiri fréttir „Sérkennileg“ hækkun íbúðaverðs á tímum hárra vaxta Leiguverð heldur áfram að hækka „Það er verið að ríkisvæða húsnæðismarkaðinn“ Leggja upp laupana í Lundúnum Annað tilboð borist í Skagann 3X Fasteignakaup fjárfesta vísbending um að fasteignaverð haldi áfram að hækka Skúli í Subway reisir glæsihótel við Jökulsárlón Búið að bjóða í Skagann 3X Brutu samkeppnislög með ótímabærri markaðssetningu Harpa vill létta lund veðurbugaðra höfuðborgarbúa Atlanta með 600 manna flugútgerð í Sádí-Arabíu Berglind gengin í eigendahópinn Staðan ekki jafnsvört og sumir vilji meina Bjartmar ráðinn aðstoðarframkvæmdastjóri Íbúar Grafarholts geta tekið til matar síns á ný „Við erum bara að reyna að lifa af“ „Komin upp í þak“ í verðlagningu Nýir eigendur taka við Melabúðinni Festi festi kaup á Lyfju Spá aukinni verðbólgu HS Orka tryggir sér fjörutíu milljarða króna Mikil fjölgun tengifarþega en mun færri ferðast til Íslands Fleiri farþegar en minni sætanýting Mikill áhugi á þrotabúi Skagans 3X Formaður atvinnuveganefndar á hlut í félaginu sem KS keypti Landsbankinn til ráðgjafar vegna sölu Íslandsbanka KS hafi fest kaup á Kjarnafæði Norðlenska Sáraroðið frá Ísafirði notað til bjargar brenndum börnum í Afganistan Brúneggjamálið tekið fyrir í Hæstarétti Úr boltanum í tryggingarnar Sjá meira