Sport

Dag­skráin í dag: Fót­bolta­stjörnur fram­tíðarinnar í Vest­manna­eyjum

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Leikmenn ÍBV tóku nokkur vel valin dansspor þegar Guðjón Guðmundsson, Gaupi, heimsótti mótið í fyrra.
Leikmenn ÍBV tóku nokkur vel valin dansspor þegar Guðjón Guðmundsson, Gaupi, heimsótti mótið í fyrra. Stöð 2 Sport

Fótboltastjörnur framtíðarinnar leggja land undir fót á hverju sumri og keppa á hverju fótboltamótinu á fætur öðru.

Aðeins ein útsending er á dagskrá á sportrásum Stöðvar 2 í dag, enda er íþróttalífið að miklu leyti í dvala yfir hásumarið.

Sýnt verður frá því þegar okkar fólk á Stöð 2 Sport kíkti til Vestmannaeyja síðustu helgi og fylgdist með einu stærsta knattspyrnumóti sumarsins, Orkumótinu.

Þátturinn byrjar á slaginu klukkan 20:00 og verður sýndur á Stöð 2 Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×