Viðskipti innlent

Bein út­sending: Kynna söluna á Kerecis

Atli Ísleifsson skrifar
Fyrirtækið var stofnað á Ísafirði árið 2009.
Fyrirtækið var stofnað á Ísafirði árið 2009. Vísir/Vilhelm

Lækningavörufyrirtækið Kerecis hefur boðað til upplýsingafundar á Ísafirði sem hefst klukkan 9:00. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi í spilara að neðan.

Í tilkynningu frá félaginu er ekki tekið fram nákvæmlega um hvað fundurinn snýst en fréttir bárust af því í gærkvöldi að bæði Sjóvá og VÍS hefðu samþykkt að selja hluti sína í Kerecis í tengslum við yfirtöku á félaginu.

Kerecis framleiðir vörur úr þorskroði, sem eru meðal annars notaðar til meðhöndlunar á sykursýkissárum, brunasárum, munnholssárum og til margskonar uppbyggingar á líkamsvef.

Eini framsögumaður fundarins er Guðmundur Fertram Sigurjónsson, forstjóri og stofnandi Kerecis, en fundarstjóri er Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands. Ólafur Ragnar situr í stjórn Kerecis fyrir hönd fjárfestisins Laurene Jobs, ekkju Steve Jobs sem kenndur var við Apple.

Hægt er að fylgjast með fundinum í spilaranum að neðan.

Fundurinn átti upphaflega að hefjast klukkan 8:30 en var frestað til klukkan níu, vegna seinkunar á flugferð frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×