Innlent

Stór hraun­pollur vestan við gíginn

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Pollurinn er stór vestanmegin við gíginn.
Pollurinn er stór vestanmegin við gíginn. Rannsóknarstofa í eldfjallafræði

Stór hraun­pollur hefur myndast vestan við gíg eld­gossins við Litla Hrút. Rann­sóknar­stofa í eld­fjalla­fræði og náttúru­vá við Há­skóla Ís­lands hefur birt nýjar myndir af hraun­pollinum.

Eins og fram hefur komið hrundi vestur­hlið gígsins í nótt svo úr varð mikið hraun­flóð. Gíg­skálin virðist hafa gefið sig eftir að hraun­tjörnin inni í honum hækkaði tölu­vert.

Í til­kynningu frá rann­sóknar­stofunni kemur fram að lík­legast sé að hraunið flæði sömu leið og hraunið sem myndaðist fyrr í gosinu. Eins og áður hefur komið fram hefur Verkís fram­kvæmt her­mun á rennsli hraunsins og sýnir hermunin að nú­verandi hraun­flæði verði svipað og áður.

Áður en veggur gígsins hrundi í nótt jókst gos­ó­róinn við gosið aukist í um fimm klukku­stundir. Hins vegar lækkaði gos­ó­róinn um­tals­vert eftir hrun veggsins.

Hraunpollurinn er nú vestan megin við gosið. Rannsóknarstofa í eldfjallafræði

Biðla til fólks að haga sér í samræmi við fyrirmæli

Í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurnesjum fyrr í dag biðlaði lögreglan til almennings um að haga sér í samræmi við fyrirmæli lögreglu og fara ekki inn á merkt hættusvæði og bannsvæði.

Ekki hafi gengið vel í öllum tilfellum að biðja fólk um að halda sig utan hættusvæðis. Þannig hafði lögregla afskipti í gær af nokkrum mönnum á fjórhjólum sem ekki hafi farið af fyrirmælum.

Lögregla þurfti auk þess að aðstoða þó nokkra göngumenn á leiðinni. Þar á meðal var kona sem var slæm í baki og tólf ára stúlka sem örmagnaðist á gönguleiðinni.

Fólk ansi nærri gígnum í gærkvöldi

Áður hefur Þorvaldur Þórðarson, jarðfræðingur, sagt í samtali við fréttastofu að fólk hafi verið ansi nærri gígnum í gærkvöldi. Raunar beint undir þeim hluta sem skreið fram.

„Og ef það hefði verið þar á þeim tíma sem þetta gerðist þá hefði ekki verið spurt að leikslokum. Þetta er góð vísbending um að fólk eigi ekki að vera nærri virkum gígum. Þeir geta brostið hvenær sem er og ef fólk lendir í því að fá svona gusu yfir sig þá hleypurðu ekki undan henni, hún fer það hratt. Það hleypur enginn frá þessu.“

Ekki sé hægt að sjá atburði líkt og þessa fyrir. Þeir gerist á ógnarhraða og stórhættulegt að vera of nærri. Þá sé megnun töluverð við gosið og mikið magn rykkorna í lofti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×