Enski boltinn

Þrá­lát meiðsli gera Arnóri erfitt fyrir í Eng­landi: Lands­liðs­verk­efni í hættu

Aron Guðmundsson skrifar
Arnór Sigurðsson, leikmaður íslenska landsliðsins og Blackburn Rovers á Englandi 
Arnór Sigurðsson, leikmaður íslenska landsliðsins og Blackburn Rovers á Englandi  Vísir/Getty

Íslenski atvinnu- og landsliðsmaðurinn í knattspyrnu, Arnór Sigurðsson leikmaður enska liðsins Blackburn Rovers verður frá næstu átta vikurnar vegna þrálátra meiðsla á nára. 

Frá þessu er greint á vef Lancs Live sem sérhæfir sig, meðal annars, í fréttum af Blackburn Rovers. 

Arnór hefur, frá því fyrir síðasta landsliðsverkefni íslenska karlalandsliðsins um miðbik júnímánaðar, verið að glíma við meiðsli í nára. 

Þau héldu honum frá þátttöku í tveimur leikjum íslenska landsliðsins í undankeppni EM 2024 gegn Slóvakíu og Portúgal hér heima. 

Síðan þá hefur Arnór samið við enska B-deildar liðið Blackburn Rovers og var hann farinn að æfa með liðinu á undirbúningstímabilinu þegar að meiðslin tóku að ágerast aftur. 

Arnór hefur enn ekki leikið leik fyrir Blackburn á undirbúningstímabilinu og séu nýjustu fréttir á rökum reistar er ljóst að hann mun ekki geta verið til taks í fyrstu leikjum liðsins á komandi tímabili. 

Þá verður að teljast afar ólíklegt að Arnór verði til taks í næsta landsliðsverkefni íslenska landsliðsins, tveimur leikjum í undankeppni EM í september. 

Blackburn Rovers lék æfingaleik gegn Fleetwood Town fyrir síðustu helgi og eftir leik var Jon Dahl Tomasson, knattspyrnustjóri Blackburn spurður út í stöðuna á Arnóri sem og Jack Vale, sem er einnig frá vegna meiðsla.

„Arnór og Jack snúa ekki aftur á næstunni,“ var svar Jon Dahl. 

Arnór Sigurðsson er með samning við rússneska liðið CSKA Moskvu en vegna innrásar Rússa í Úkraínu innleiddi Alþjóðaknattspyrnusambandið (FIFA) nýtt úrræði sem gerði erlendum leikmönnum á mála hjá rússneskum og úkraínskum félagsliðum að losa sig tímabundið undan samningum sínum. 

Íslendingurinn knái hélt því til IFK Norrköping á láni til í júlí á síðasta ári þar sem að hann fann fjöl sína og vakti áhuga hjá Blackburn Rovers. 

Samningur Arnórs við CSKA Moskvu rennur út næsta sumar og því nokkuð ljóst að hann mun ekki snúa aftur til Rússlands. 

Hann mun því leikja hjá Blackburn Rovers á komandi tímabili 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×