Skoðun

Góða skemmtun um verslunarmannahelgina

Jón Svanberg Hjartarson skrifar

Framundan er ein helsta ferðahelgi ársins, verslunarmannahelgin. Neyðarlínan vill af því tilefni senda öllum landsmönnum góða kveðju og ósk um um að landsmenn skemmti sér vel. Jafnframt viljum við hvetja viðburðahaldara til að tryggja að allar þær samkomur sem haldnar verða verði góð skemmtun með öryggi gesta í forgangi. Þar á ofbeldi ekki heima.

Á árum áður þótti kannski ekki tiltökumál að slagsmál fylgdu því að fara á ball eða tónleika, líkt og við töldum okkur jafnvel trú um að ofbeldi innan fjölskyldu væri einkamál viðkomandi og lokuðum alltof oft augunum fyrir kynferðislegu ofbeldi og áreitni. Við eigum að vita betur í dag.

Góða skemmtun er sameiginlegt átak Neyðarlínunnar, lögreglunnar og dómsmálaráðuneytis sem hvetur til árvekni og öryggis þegar við komum saman í sumar. Jafnframt er minnt á að Neyðarlínan gerir engan greinarmun á því hver hringir í 112 eða í hvaða aðstæðum – það sem skiptir máli er að þú hringir í 112 ef þú þarft á neyðaraðstoð að halda. Á vef okkar 112.is má einnig finna aðgengilega fræðslu gegn ofbeldi og hina margvíslegu hjálp sem er til staðar fyrir þolendur ofbeldis. Þar má finna fræðslu um allar birtingarmyndir ofbeldis, dæmisögur og úrræði, svo að við hvetjum alla til að nýta sér þessa fræðslu – bæði fyrir sig og sína.

Það er mikilvægt að hafa í huga að vera vakandi fyrir umhverfi okkar, sérstaklega úti á lífinu. Ef þú sérð manneskju skapa óþægilegar aðstæður og virða ekki mörk þeirra sem eru í kringum hana, skaltu ekki hika við að spyrja, „er allt í góðu?“ Ef þú færð neikvætt eða ekkert svar við spurningu þinni, þá er mikilvægt að þú stígir inn með því að leita til þeirra sem aðstoð geta veitt, t.d. gæsluliða, barþjóns eða dyravarðar, vina, leigubílstjóra eða vagnstjóra strætisvagna, eða - að hringja í 112.

Ofbeldi er samfélagslegt mein og með átakinu Góða skemmtun vill Neyðarlínan 112 hvetja almenning til að vera vakandi fyrir umhverfi sínu, stuðla að öryggi í samskiptum, virða mörk og segja frá ef einhver sýnir óþægilega eða ógnvænlega hegðun. Þannig getum við öll stuðlað að góðri skemmtun án hvers konar ofbeldis eða áreitni.

Komum heil heim.

Höfundur er framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar.




Skoðun

Sjá meira


×