Lífið

Sigmar og Júlíana hvort í sína áttina

Íris Hauksdóttir skrifar
Júlíana og Sigmar hafa verið eitt glæsilegasta par landsins um árabil.
Júlíana og Sigmar hafa verið eitt glæsilegasta par landsins um árabil.

Hjónin Sigmar Guðmundsson þingmaður Viðreisnar og Júlíana Einarsdóttir mannauðssérfræðingur hjá Samskipum hafa slitið sambandi sínu. Þau hafa verið í sambandi í ellefu ár síðan leiðir þeirra lágu saman þegar þau störfuðu í fjölmiðlum.

Smartland greinir frá hjúskaparslitunum. Sigmar starfaði lengi hjá Ríkisútvarpinu og var dagskrárgerðarmaður í Kastljósinu árið 2012 þegar hann kynntist Júlíönu. Hún starfaði þá sem skrifta í fréttum Stöðvar 2 og Bylgjunnar.

Sigmar yfirgaf fjölmiðlana árið 2021 og sneri sér að stjórnmálum. Hann hefur verið ritari flokksins síðan í febrúar síðastliðnum.

Sigmar og Júlíana eiga tvö börn saman en Sigmar á þrjú börn úr fyrri samböndum. 


Tengdar fréttir

Dagur í lífi Sigmars: „Ekkert betra en fyrsti bolli dagsins"

Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar, segir nýja starfið á þinginu gjörólíkt gamla starfinu á RÚV. Fundarharkan sé talsvert meiri. Hann segir frúnna með mikið keppnisskap og ekki sætta sig við að tapa á spilakvöldum fjölskyldunnar. 

Sigmar og Júlíana gengin í það heilaga

Sigmar Guðmundsson, frambjóðandi Viðreisnar og fyrrverandi fjölmiðlamaður, og Júlíana Einarsdóttir mannauðssérfræðingur, eru gengin í það heilaga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.