Enski boltinn

Með stæla á Twitter og vill burt

Valur Páll Eiríksson skrifar
Guaita hefur engan áhuga á að vera lengur í Lundúnum.
Guaita hefur engan áhuga á að vera lengur í Lundúnum. Getty

Vicente Guaita, markvörður Crystal Palace, setti áhugaverða færslu við Twitter-færslu félagsins. Hann hefur engan áhuga á að spila meira fyrir félagið.

Crystal Palace hóf tímabilið í ensku úrvalsdeildinni í dag og vann 1-0 útisigur á Sheffield United þar sem Sam Johnstone hélt hreinu í marki liðsins. Hann vann byrjunarliðssætið af Guaita á síðustu leiktíð og hefur unnið sér inn traust stjórans Roy Hodgson.

Líkt og hefð er fyrir tilkynnti Crystal Palace byrjunarlið félagsins klukkustund fyrir leik á Twitter-síðu þess en Guaita var utan hóps.

Guaita svaraði færslunni á miðlinum og sagði: „Hvar er nafnið mitt? Hvernig get ég spilað fyrir Palace?“

Spænski markvörðurinn á ár eftir af samningi sínum og vill fá að komast heim til Spánar. Palace vill þó ekki leysa hann undan samningi og bíður eftir tilboðum í kauða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×