Becky Hammon hefur brotið ófá blöð í sögu NBA deildinnar. Eftir 16 ára feril sem leikmaður í WNBA þá réð Gregg Popovich hana til starfa í þjálfarateymi San Antonio Spurs þar sem hún varð fyrst kvenna til að sinna starfi aðstoðarþjálfara í NBA deildinni.
Hún varð síðar aðalþjálfari liðsins í sumardeildinni sem hún vann og varð einnig fyrst kvenna til að vera starfandi aðalþjálfari liðs þegar Popovich var rekinn úr húsi í leik í desember 2020. Í dag er hún þjálfari Las Vegas Aces í WBNA deildinni þar sem hún landaði titlinum á sínum fyrsta ári með liðið.
Í gær voru bæði hún og Popovich vígð inn í frægðarhöll NBA deildarinnar og í þakkarræðu hennar báru tilfinningar hana og Popovich ofurliði.
„Ég veit að þú varst ekki að reyna að vera hugrakkur þegar þú réðst mig en þú gerðir samt eitthvað sem enginn annar í atvinnuíþróttum hefur nokkurn tímann gert.“