Lífið

Stjörnu­lífið: Gleði, glimmer og gull­kroppar

Íris Hauksdóttir skrifar
Gleðigangan var vel sótt og glimmerið að sjálfsögðu á sínum stað.
Gleðigangan var vel sótt og glimmerið að sjálfsögðu á sínum stað.

Ást og gleði, stjörnufans í brúðkaupum og íslensk sumarkvöld eins og þau gerast best einkenndu helgina.

Gleðigangan trónir hæst þegar litið er yfir liðna helgi þar sem einkennisorðið Ást er ást sveif yfir vötnum. Sólin mætti málstaðnum til heiðurs og bros var á vörum allra sem samglöddust ástinni í allri sinni mynd. 

Ástin blómstrar og Íslendingar njóta sumarsins

Fiskidagurinn mikli var haldinn hátíðlegur á Dalvík og var hátíðin að sögn viðstaddra með glæsilegasta móti þar sem öllu var tjaldað til. Margir helstu listamenn þjóðarinnar stigu á stokk og fjölmargir gestir mættu til að berja flugeldana og skemmtiatriðin augum. 

Ástin heldur áfram að blómstra og fjölmargir samglöddust brúðhjónum hér á landi sem og utan landsteinanna. 

Íslendingar njóta sumarkvöldanna hér á landi og eru duglegir að deila fallegum myndum frá sér úti í náttúrunni meðan veðrið leikur við hvern sinn fingur.

Skýlaus samstaða

Pride prinsinn, Páll Óskar, stýrði gleðigöngunni, nú sem ávallt með glæsibrag. Vagninn hans var samkvæmt venju fagurlega skreyttur þar sem mátti sjá fjöldan allan af dönsurunum og glimmersprengjum. Palli þakkaði áhorfendum fyrir að sýna skýlausa samstöðu með öllu hinsegin fólki í tilefni dagsins. 

Vinaparið Þórdís og Sigurjón fögnuðu deginum saman með börnunum sínum tveimur. Dóttirin, Stella Katrín, kom í heiminn fyrr á þessu ári og fagnar því sinni fyrstu Gleðigöngu.

Samfélagsmiðlastjarnan Helgi Ómars og unnusti hans, Pétur tóku í fyrsta skipti þátt í göngunni í ár. Helgi segist ekki hafa náð að veifa næstum því öllum sem hann þekkti á hliðarlínunni. Í pistli sínum á Instagram segist hann þakklátur að hafa fæðst hér á landi því samkynhneigð sé ólögleg svo víða um heim. Hann hvetur alla til að berjast fyrir jafnrétti og frjálsum ástum. 

Ingileif og María innilegar í göngunni ásamt börnunum sínum tveimur. Báðar hafa þær verið áberandi í baráttunni og segist Ingileif ekki verið stoltari yfir stórkostlegri gleðigöngu. Hún segir jafnframt mikilvægt að vera sýnileg, standa saman og fagna fjölbreytileikanum. 

Myndlistakonan Tara Tjörva fagnar ástinni ásamt ástkonu sinni. Tara er þekktust fyrir myndir sínar sem innihalda hnitmiðaðan og fallegan texta tileinkuðum fjölbreyttum tilefnum. 

Þetta þarf ekki að vera flókið

Þórdís Kolbrún lét sig ekki vanta í gönguna en á sama tíma hljóp eiginmaður hennar 28 km um Fimmvörðuháls. Í færslu sinni á Instagram skrifar hún: „Á meðan okkar allra besti hljóp 28 km Fimmvörðuháls fórum við í okkar árlegu ferð til að taka þátt í hátíðinni sem fagnar sigrum og minnir á baráttuna um að það eigi að vera sjálfsagt að fá að vera eins maður er. Að elska er það mannlegasta sem til er. Því fleiri sem leita hamingjunnar á eigin forsendum - því betri samfélög eru. Þetta þarf í alvöru ekki að vera svona flókið.“

Leikkonan Íris Tanja og söngkonan Elín Ey sögðust vera stoltar af hvor annarri í tilefni dagsins.

Svala Björgvins minnist tímans þegar hún fékk að skemmta við Gleðigönguna í Dublin fyrir nokkrum árum. 

Sannkölluð árshátíð sviðslistafólks

Friðrik Ómar Hjörleifsson er allt í öllu þegar kemur að stórhátíðinni Fiskidagurinn mikli, sem haldin var um helgina á Dalvík. Hann, ásamt söngvurunum Matta Matt og Eyþóri Inga buðu hátíðina velkomna. 

Inga Sæland þakkar Rúrik fyrir ánægjuleg kynni á Fiskideginum mikla sem haldin var á Dalvík um helgina.

Færeyski söngfuglinn, Jógvan og Eurovision-stjarnan, Diljá gerðu allt vitlaust á Dalvík. Jógvan segir Fiskidaginn til fyrirmyndar og lýsir honum sem hálfgerðri árshátíð sviðslistafólks. 

Rauði drekinn aftur á svið

Fegurðardrottningin Manuela Ósk Harðardóttir hefur augljóslega engu gleymt en fegurðarsamkeppnin, Miss Universe Iceland verður haldin síðar í vikunni. Í tilefni þess, sem og þeirri staðreynd að nú eru tuttugu ár síðan hún tók þátt fyrir Íslands hönd smellti hún sér í kjólinn góða. Hún segir að nú sé hringnum náð. 

Sunneva Einars fagnaði 27 ára afmæli sínu með pomp og barbie prakt í glæsilegum kjól frá Ginu Tricot. Veitingarnar áttu það sameiginlegt að vera allar bleikar og einungis vinkonum boðið.

Áslaug Arna var glæsileg í náttúruparadís.

Brúðkaupsævintýri á Ítalíu

Birgittia Líf naut lífsins á Ítalíu í brúðkaupi hjá vinkonu sinni. 

Ástrós Traustadóttir dansari og áhrifavaldur var sömuleiðis glæsileg í sama brúðkaupi.

Sandra Björg Helgaóttir ásamt brúðinni Töru Sif Birgisdóttur, glæsilegar að morgni brúðkaupsins sem haldið var á Ítalíu. 

Samfélagsmiðlastjarnan Viktor Andersen skálaði í MimOsa.

Söngkona hljómsveitarinnar Of Monsters and Men naut sín í eyðimörkinni.

Leikkonan Halla Vilhjálmsdóttir naut sín í bjórbaðinu á Norðurlandi.

Kolbrún Pálína segist þakklát fyrir magnaðar gönguvinkonur sem eiga það sameiginlegt að elska náttúruna, ævintýri og samveru. 

Förðunarsérfræðingurinn Harpa Káradóttir þakkar fyrir sumarið og segist taka haustinu fagnandi með hoppandi kátum krökkum í sólsetrinu.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.