Enski boltinn

Valdi Crystal Palace fram yfir Chelsea

Smári Jökull Jónsson skrifar
Michael Olise var í U21-árs liði Frakklands sem lék á Evrópumótinu í sumar.
Michael Olise var í U21-árs liði Frakklands sem lék á Evrópumótinu í sumar. Vísir/Getty

Chelsea hefur verið öflugt á félagaskiptamarkaðnum í sumar og meðal annars náð í þá Moses Caceido og Romeo Lavia beint fyrir framan nefið á Liverpool. Þeir misstu hins vegar af einu skotmarki sínu í dag.

Michael Olise hefur verið orðaður við brottför frá Crystal Palace á síðustu vikum og í gær bárust fréttir af því að Chelsea hefði virkjað klásúlu í samningi hans hjá Palace með því að bjóða 35 milljónir punda í Frakkann unga.

Í dag var hins vegar tilkynnt að Olise hefði ákveðið að skrifa undir nýjan samning við Crystal Palace. Samningurinn er til fjögurra ára og ljóst að ekkert verður af félagaskiptum til Chelsea.

Franski U21-árs landsliðsmaðurinn er að jafna sig á meiðslum sem hann varð fyrir á Evrópumótinu í sumar en hann skoraði tvö mörk fyrir Palace á síðustu leiktíð auk þess að gefa ellefu stoðsendingar.

„Við erum algjörlega hæstánægð. Þetta bindur enda á ýmsar sögusagnir og lyftir okkur upp,“ sagði Steve Parish stjórnarformaður Crystal Palace þegar tilkynnt var um framlengingu samningsins.

„Þar sem Wilfried Zaha fór hefði það verið áfall fyrir okkur að missa Michael. Við erum á leið í tímabil með svo gott sem sama lið og við enduðum það síðasta með.“

Roy Hodgson var sömuleiðis í skýjunum.

„Þetta eru bestu mögulegu fréttir sem við gátum fengið. Við höfðum áhyggjur þegar félag af þeirri stærðargráðu sem Chelsea er sýndi áhuga. Ég hef alltaf vonað að Michael myndi sjá að framtíð hans hér er björt. Við getum hjálpað honum upp á næsta stig. Ákvörðunin var hans og ég verð að hrósa stjórninni fyrir að hafa náð að sannfæra hann um að þetta sé hans staður.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×