Víkingar urðu á dögunum bikarmeistarar kvenna eftir frækinn sigur á Breiðablik í úrslitum. Í kvöld var liðið hins vegar mætt í baráttuna í Lengjudeildinni á ný og mætti Aftureldingu á útivelli.
Hlín Heiðarsdóttir kom Aftureldingu yfir á 5. mínútu leiksins í kvöld en Mosfellingar þurftu nauðsynlega á sigri að halda til að missa liðin fyrir ofan sig ekki of langt frá sér.
Hulda Ösp Ágústsdóttir jafnaði metin á 65. mínútu en Maya Neal kom Aftureldingu yfir á nýjan leik átta mínútum fyrir leikslok. Á lokamínútunni jafnaði Hulda Ösp metin fyrir Víkinga sem komust síðan mjög nálægt því að jafna metin en áttu skot í slá og síðan framhjá úr dauðafærum.
Lokatölur 2-2 og Afturelding nú búið að missa liðin fyrir ofan sig lengra frá sér í töflunni. Víkingar eru enn á toppnum og með fjögurra stiga forskot á Fylki og HK sem eru í öðru og þriðja sæti deildarinnar.
Fylkir vann stórsigur á Augnablik á heimavelli og heldur því öðru sætinu. Tinna Harðardóttir og Erna Sólveig Sverrisdóttur komu Fylki í 2-0 áður en Edith Kristín Kristjánsdóttir minnkaði muninn.
Fylkir bætti hins vegar þremur mörkum við fyrir hálfleik. Eva Rut Ásþórsdóttir skoraði fyrst en Guðrún Karítas Sigurðardóttir bætti tveimur mörkum við.
Í síðari hálfleik skoraði Eva Rut síðan sitt annað mark áður en Birna Kristín Eiríksdóttir innsiglaði sigurinn. Lokatölur 7-1 og Fylkir nú aðeins þremur stigum á eftir toppliði Víkinga í öðru sæti deildarinnar.
Upplýsingar um markaskorara í leik Fylkis og Augnabliks eru fengnar af Fótbolti.net