United björguðu sér frá niðurlægingu á heimavelli

Bruno Fernandes fyrirliði Manchester United fagnar marki sínu í dag sem tryggði United sigurinn.
Bruno Fernandes fyrirliði Manchester United fagnar marki sínu í dag sem tryggði United sigurinn. Vísir/Getty

Manchester United tapaði á móti Tottenham í síðasta leik og marði sigur á Wolves í fyrstu umferð. Það var því pressa á heimamönnum að sýna eitthvað á móti Forest á Old Trafford í dag en gestirnir fengu sannkallaða draumabyrjun.

Eftir aðeins fjögurra mínútna leik var staðan orðin 0-2 gestunum í vil. Skrýtnar ákvarðanir varnarlega færðu Forest mörkin á silfurfati og virtist stefna í algjöra niðurlægingu Manchester United á heimavelli.

En leikmenn United sýndu mikla yfirvegun og baráttuþrek og unnu sig hratt og örugglega inn í leikinn á ný og Christian Eriksen minnkaði muninn í 1-2 áður en flautað var til hálfleiks.

Heimamenn voru miklu sterkara liðið á vellinum í seinni hálfleik og tóku öll völd á honum. Casemiro jafnaði leikinn með skallmarki á 52. mínútu eftir góðan undirbúning frá Bruno Fernandes sem tryggði United öll stigin með marki úr vítaspyrnu á 76. mínútu.

Fimm mínútum áður hafði fyrirliði Forest, Joe Worrall, fengið að líta rauða spjaldið þegar hann tók títtnefndan Bruno Fernandes niður þegar hann var að sleppa einn í gegn.

Stuðningsmenn United geta því varpað öndina ögn léttar en margir þeirra voru eflaust farnir að örvænta í upphafi leiks í dag.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira