Lífið

Tryllt orma­keppni í stór­af­­mæli Kalla

Íris Hauksdóttir skrifar
Hjónin Tobba Marinós og Karl Sigurðsson héldu glæsilega garðveislu við Hringbrautina í Vesturbæ Reykjavíkur.
Hjónin Tobba Marinós og Karl Sigurðsson héldu glæsilega garðveislu við Hringbrautina í Vesturbæ Reykjavíkur. aðsend

Karl Sigurðsson, Baggalútur og fyrrverandi borgarfulltrúi, fagnaði fimmtugs afmæli sínu um helgina sem leið. Í tilefni þess hélt eiginkona hans, Tobba Marinós, fjölmiðlakona og frumkvöðull, glæsilega veislu honum til heiðurs. 

Veislan var haldin í garðinum heima hjá fjölskyldunni í Vesturbænum. Hjónin eiga tvær dætur sem fögnuðu að sjálfsögðu með föður sínum og fríðum hópi gesta. 

Hjónin voru nutu skemmtiatriða kvöldsins.aðsend

Tobba gerði sér lítið fyrir og byggði svið í garðinum þar sem fjölmargir listamenn stigu á stokk. Má þar nefna Sögu Garðars, Snorra Helgason, Kalla Olgeirs og Siggu Eyrúnu að ógleymdum Baggalúts-mönnum sem skemmtu að sjálfsögðu veislugestum.

Klippa: Kalli í Baggalúti fagnaði fimmtudagsafmæli

Snyrtileg útihátíð með stórkostlegum atriðum

„Það var búið að vera bongó blíða síðastliðnar átta vikur en svo var skítaspá fyrir afmælisdaginn,“ segir Tobba í samtali við blaðakonu og heldur áfram. 

„Það þýðir ekkert annað en að hugsa í lausnum og þess vegna ræstum við út Seglagerðina Ægi. 

Tjöldin í garðinum rúmuðu ríflega tvö hundruð manns. aðsend

Hingað mættu fjórir menn sem tóku sér góða þrjá tíma í að setja upp tryllt tjöld yfir allan garðinn sem rúmuðu á annað hundrað manns. Þeir redduðu þessu og þetta var því eins og snyrtileg útihátíð með stórkostlegum atriðum“

Kalli Olgeirs sló í gegn

Í færslu sinni á Facebook lofsyngur Tobba tónlistarmanninn Kalla Olgeirs sem sló að hennar sögn rækilega í gegn í veislunni.

Hjónin Kalli Olgeirs og Sigga Eyrún stigu á stokk í veislunni.aðsend

„Lífsgæðin sem fylgja því að eiga þennan mann sem vin Karl Olgeirsson. Kalli okkar er einn hæfileikaríkasti og hæglátasti listamaður landsins. Orðaleikinn á queen Sigríður Eyrún Friðriksdóttir. Takk. Þúsund sinnum takk.“

Þegar leið á kvöldið var boðið upp á kakó og stroh.aðsend

Ræður kvöldsins voru sömuleiðis hver annarri betri og við efndum til keppni í hver gæti gert flottasta orminn. Sigurvegarinn endaði með brákað rifbein, en það var allt þess virði,“ segir Tobba og glottir. 

„Þegar leið á kvöldið var svo boðið upp á kleinur, flatbrauð, kakó og stroh því þetta var jú fimmtudagsafmæli.“

Hér fyrir neðan má sjá myndir úr veislunni.

Kalli fagnaði fimmtíu ára afmæli um helgina sem leið.aðsend

Snorri Helga, Saga Garðars, eiginkona Snorra og Katrín Odds héldu skemmtilega ræðu eins og þeirra var von og vísa.aðsend

Fjöldinn allur af tónlistarfólki skemmti gestum.aðsend

Feðginin Kalli og eldri dóttir hjónanna, Regína.aðsend

Tobba lét útbúa skreytingar á drykkjarföng veislunnar en hún úthugsar öll smáateiði þegar kemur að skemmtilegum skreytingum. aðsend

Girnileg ávaxtaspjót voru meðal veitinga. aðsend

Tjaldið kom vel út í garðinum.aðsend

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.