Sameinað félag Regins og Eikar gæti greitt 5 til 6 milljarða í arð
![Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Regins, sagði á uppgjörsfundi í morgun að það væri að verða „vatnaskil“ í fjárfestingum og endurbótum á eignum í eigu fasteignafélagsins. Fjárfestingarþörf yrði minni en verið hafi á undanförnum árum.](https://www.visir.is/i/B20220347939DA587E9288C2571217EF67122049A6EEF8BDFE691451F4160A74_713x0.jpg)
Sameinað fasteignafélag Regins og Eikar ætti að geta greitt 5 til 6 milljarða króna í arð á ári eða 6,3-7,6 prósent af markaðsvirði, sagði forstjóri Regins og benti á að um væri að ræða breytingu á uppleggi varðandi samrunann. Arðgreiðslurnar væru verðtryggðar því leigusamningar væru að stofni til verðtryggðir.