Meistararnir enn með fullt hús stiga á toppi deildarinnar

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Erling Braut Haaland skoraði þrjú og lagði upp eitt.
Erling Braut Haaland skoraði þrjú og lagði upp eitt. Vísir/Getty

Eng­lands­meistarar Manchester City unnu öruggan 5-1 sigur er liðið tók á móti Fulham í ensku úrvalsdeildinni í dag. City er eina liðið í deildinni sem enn er með fullt hús stiga.

Julian Alvarez kom heimamönnum í City yfir á 31. mínútu eftir stoðsendingu frá Erling Braut Haaland áður en Tim Ream jafnaði metin tveimur mínútum síðar.

Það leit því út fyrir að staðan yrði jöfn í hálfleik, en Nathan Ake sá til þess að heimamenn fóru með forystuna inn í hálfleikshléið með marki á fimmtu mínútu uppbótartíma.

Erling Braut Haaland skoraði svo þriðja mark Englandsmeistarana á 58. mínútu og það fjórða af vítapunktinum rúmum tíu mínútum síðar.

Norðmaðurinn var þó ekki hættur því hann fullkomnaði þrennu sína á sjöundu mínútu uppbótartíma og rak þar með seinasta naglann í kistu Fulham.

Manchester City trónir því á toppi ensku úrvalsdeildarinnar með fullt hús stiga eftir fjóra leiki, en Fulham situr í því fjórtánda með fjögur stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira