Enski boltinn

Marka­hæsti leik­maður HM semur við Manchester United

Aron Guðmundsson skrifar
Hinata himinlifandi með að vera orðin hluti af Manchester United
Hinata himinlifandi með að vera orðin hluti af Manchester United Mynd: Manchester United

Marka­hæsti leik­maður svo til ný­af­staðins HM kvenna í fót­bolta, hin japanska Hinata Mi­yazawa, hefur samið við efstu deildar lið Manchester United. Frá þessu greinir fé­lagið í til­kynningu á heima­síðu sinni.

Hinata sló í gegn og skoraði fimm mörk í fjórum leikjum með japanska landsliðinu á HM sem fór fram í Nýja-Sjálandi og Ástralíu í sumar en hún er eini leikmaðurinn, sem kemur frá landi utan Evrópu, til þess að hreppa gullskó mótsins sem markahæsti leikmaður þess.

Hinata hefur undanfarið spilað í heimalandi sínu með WE deildar liði Mynavi Sendai en hún er gríðarlega ánægð með að vera komin í herbúðir rauðu djöflanna.

„Það er ánægjulegt fyrir mig að verða hluti af Manchester United fjölskyldunni og þessu frábæra liði. Ég hlakka til að hefja leik með félaginu og vonast til þess að mín spilamennska muni heilla stuðningsmenn liðsins.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×