Innlent

Hádegisfréttir Bylgjunnar

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Fréttatíminn verður á sínum stað klukkan tólf. 
Fréttatíminn verður á sínum stað klukkan tólf.  Vísir/Vilhelm

Í hádegisfréttum Bylgjunnar fjöllum við um alvarlegt bílslys sem varð í morgun við Blönduós þegar rúta með á þriðja tug farþega fór út af veginum. 

Fjölmargir voru fluttir á sjúkrahús en enginn mun þó vera í lífshættu að sögn lögreglu. 

Einnig fjöllum við um hvalveiðarnar áfram en hvalskipin komu til hafnar í Hvalfirði með þrjár langreyðar. Dýraverndunarsinni sem fylgst hefur með starfsemi Hvals í Hvalfirði segir einn hvalanna hafa verið skotinn minnst tvisvar með skutli og veiðarnar því ekki í samræmi við nýja reglugerð.

Einnig verður rætt við Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra um samgöngusáttmálann sem hann segir ekki standast lengur og þarfnast endurskoðunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×