Innlent

Bein út­sending: Hlustaðu á stefnu­ræðu for­sætis­ráð­herra

Jón Þór Stefánsson skrifar
Stefnuræða Katrínar Jakobsdóttur er lengri en allar hinar ræðurnar í kvöld. Hún fær tólf mínútur, en allir aðrir fá sex.
Stefnuræða Katrínar Jakobsdóttur er lengri en allar hinar ræðurnar í kvöld. Hún fær tólf mínútur, en allir aðrir fá sex. Vísir/Vilhelm

Stefnuræða Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra hefst klukkan 19:40 í kvöld. Að stefnuræðunni lokinni munu þingmenn frá hinum flokkunum halda sínar ræður.

Hægt verður að fylgjast með stefnuræðunni og umræðunum sem fylgja eftir í spilaranum hér að neðan.

Ræðurnar verða sextán talsins, en allir átta flokkarnir á Alþingi fá tvær ræður. Umræðurnar skiptast í tvær umferðir. Forsætisráðherra hefur tólf mínútur til framsögu en allir aðrir hafa sex mínútur bæði í fyrri og í seinni umferð.

Röð flokkanna í báðum umferðum er eftirfarandi:

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Samfylkingin

Flokkur fólksins

Sjálfstæðisflokkur

Píratar

Framsóknarflokkur

Viðreisn

Miðflokkurinn

Ræðumennirnir eru eftirfarandi:

Ræðumenn fyrir Vinstrihreyfinguna – grænt framboð verða Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra í fyrri umferð og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, í seinni umferð.

Fyrir Samfylkinguna tala Kristrún Frostadóttir, 3. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, í fyrri umferð og Jóhann Páll Jóhannsson, 4. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður, í seinni umferð.

Fyrir Flokk fólksins tala Inga Sæland, 7. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, í fyrri umferð, og Jakob Frímann Magnússon, 8. þingmaður Norðausturkjördæmis, í seinni umferð.

Fyrir Sjálfstæðisflokk tala Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, í fyrri umferð og í seinni umferð Diljá Mist Einarsdóttir, 6. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður.

Ræðumenn Pírata verða í fyrri umferð Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, 7. þingmaður Suðvesturkjördæmis, og í seinni umferð Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, 11. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður.

Fyrir Framsóknarflokk tala í fyrri umferð Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, og í seinni umferð Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra.

Ræðumenn Viðreisnar verða í fyrri umferð Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, 5. þingmaður Suðvesturkjördæmis, og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, 8. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður, í þeirri seinni.

Ræðumenn Miðflokksins verða Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 7. þingmaður Norðausturkjördæmis, í fyrri umferð, og Bergþór Ólason, 8. þingmaður Norðvesturkjördæmis, í seinni umferð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×