Enski boltinn

Gagnrýnir ósmekklegan Onana fyrir að öskra á Maguire

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Harry Maguire hefur átt erfitt uppdráttar undanfarna mánuði.
Harry Maguire hefur átt erfitt uppdráttar undanfarna mánuði. getty/Marco Steinbrenner

Jamie Carragher segir að André Onana hafi farið langt yfir strikið þegar hann öskraði á Harry Maguire í æfingaleik Manchester United í sumar.

Maguire hefur ekki átt sjö dagana sæla að undanförnu. Hann er búinn að missa sæti sitt í byrjunarliði United og þá var fyrirliðabandið tekið af honum. Maguire nýtur hins vegar stuðnings Gareths Southgate, þjálfara Englands, sem heldur áfram að velja, og verja, hann.

Maguire skoraði sjálfsmark þegar England sigraði Skotland í vináttulandsleik í fyrradag, 1-3. Eftir leikinn hnýtti Southgate í þá sem hafa gagnrýnt Maguire og sagði meðferðina sem hann hefur fengið fáránlega.

Í pistli sínum fyrir The Telegraph fjallar Jamie Carragher um stöðu Maguires. Hann hvetur Southgate til að hætta að velja hann til verja hann, þar til hann snýr ferli sínum við hjá United, eða öðru félagi.

Maguire segir hins vegar alltof auðvelt að gera Maguire að blóraböggli og tók dæmi úr æfingaleik United gegn Borussia Dortmund í sumar þegar Onana, þá nýkominn til United, lét Englendinginn heyra það eftir að Þjóðverjarnir fengu dauðafæri eftir slaka sendingu hans.

„Eitt ósmekklegasta atvikið kom í æfingaleiknum gegn Dortmund í sumar þegar nýi maðurinn Onana byrjaði að öskra á Maguire sem var að mínu mati skammarleg hegðun til að höfða til stuðningsmanna United,“ sagði Maguire.

„Ég trúði ekki mínum eigin augum en þetta sagði allt um það sem er að. Maguire var enn fyrirliði United þarna. Hann hefði átt að bregðast illa við, rekið Onana til baka og krafist virðingar. Í staðinn virkaði hann eins og maður sem skortir sjálfstraust og vald.“

Maguire hefur komið við sögu í einum leik með United á tímabilinu. Hann spilaði hins vegar báða leiki enska landsliðsins á dögunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×