Enski boltinn

Mætti fjórum tímum of snemma á æfingu

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Anthony Martial var alltof stundvís í morgun.
Anthony Martial var alltof stundvís í morgun. getty/Visionhaus

Á meðan fréttir berast af erfiðleikum Jadons Sancho að mæta á æfingar hjá Manchester United á réttum tíma er Anthony Martial hinum enda kvarðans.

Martial mætti á Carrington, æfingasvæði United, í morgun en fór eftir aðeins fjórar mínútur. Hann hafði nefnilega mætt fjórum klukkutímum of snemma á æfingu. Martial hélt því aftur heim á leið en kom aftur á Carrington um hádegið.

Martial hefur verið byrjunarliði United í síðustu tveimur leikjum liðsins en ekki náð sér á strik.

Í leiknum gegn Arsenal um þarsíðustu helgi var hann tekinn af velli fyrir Rasmus Höjlund sem sýndi góða takta. Jafnvel búist er við því að danski framherjinn komi inn í byrjunarlið United gegn Brighton í 5. umferð ensku úrvalsdeildarinnar á laugardaginn. United er í 11. sæti hennar með sex stig.

Martial hefur verið hjá United síðan 2015. Hann hefur alls leikið 301 leik fyrir félagið og skorað 88 mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×