Sancho gagnrýndi knattspyrnustjóra Manchester United, Hollendinginn Erik ten Hag, harðlega í færslu á samfélagsmiðlum eftir að hann var skilinn eftir utan leikmannahóps Manchester United fyrir leik liðsins gegn Arsenal fyrir landsleikjáhlé.
Ten Hag spurður út í fjarveru hans á blaðamannafundi eftir leik. Þar tjáði Hollendingurinn blaðamönnum að Sancho hefði ekki staðið sig nógu vel á æfingum og hefði því ekki verið valinn í liðið.
Sancho svaraði því með umræddri færslu. Sagði fólki að trúa ekki öllu því sem það læsi. „Ég hef verið gerður að blóraböggli í langan tíma og það er ekki sanngjarnt!“ skrifaði Sancho meðal annars í færslunni sem hann hefur nú eytt.
Yfirlýsing Manchester United um málið í dag er stutt og hnitmiðuð:
„Jadon Sancho mun æfa einn, fjarri aðalliði félagsins þar til lausn finnst á máli varðandi agabrot hans.“