Enski boltinn

Kyle Walker framlengir við City

Dagur Lárusson skrifar
Kyle Walker verður hjá City fram til ársins 2026.
Kyle Walker verður hjá City fram til ársins 2026. Vísir/Getty

Kyle Walker, leikmaður Manchester City hefur skrifað undir nýjan samning við félagið til ársins 2026.

Framtíð enska landsliðs leikmannsins hefur verið í lausu lofti í allt sumar en hann var mikið orðaður við Bayern Munchen í Þýskaland. En hann hefur nú ákveðið að framlengja dvöl sína hjá Englandsmeisturunum en hann kom frá Tottenham árið 2017.

Það hefur alltaf verið stutt í grínið hjá Kyle Walker og því var það vel við hæfi hvernig Manchester City og Walker sjálfur ákváðu að tilkynna framlenginguna en myndbandið má sjá hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×