Enski boltinn

Ten Hag um Sancho: „Kúltúrinn innan félagsins var ekki góður“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jadon Sancho og Erik ten Hag þegar sambandið milli þeirra var öllu betra en nú.
Jadon Sancho og Erik ten Hag þegar sambandið milli þeirra var öllu betra en nú. getty/Martin Rickett

Erik ten Hag, knattspyrnustjóri Manchester United, segir að hann hafi þurft að stíga fast til jarðar hjá félaginu og innleiða aga hjá því.

Ten Hag sat fyrir svörum á blaðamannafundi í dag. Mikið hefur gengið á hjá United að undanförnu, aðallega utan vallar, og Ten Hag var skiljanlega spurður út í Harry Maguire, Antony og Jadon Sancho.

Sá síðastnefndi skammaðist út í Ten Hag á Twitter eftir að hann var ekki í leikmannahópi United í leiknum gegn Arsenal. Í gær sendi United svo frá sér yfirlýsingu þess efnis að Sancho fengi ekki að æfa með aðalliði félagins.

„Jadon Sancho mun æfa einn, fjarri aðalliði félagsins þar til lausn finnst á máli varðandi agabrot hans,“ sagði í stuttorðri yfirlýsingu United.

„Ég var beðinn um að setja strangar reglur því kúltúrinn í félaginu fyrir síðasta tímabil var ekki nógu góður. Ég þurfti að setja gott fordæmi,“ sagði Ten Hag. „Það er aldrei þannig að einhver geri ein mistök. Það er aðdragandi að ákvörðun varðandi agareglur. Þú verður að standa í lappirnar.“

Antony hefur verið sendur í leyfi vegna ásakana þriggja kvenna um ofbeldi sem hann á að hafa beitt þær. Ten Hag sagðist ekki hafa hugmynd um hvenær Brassinn myndi snúa aftur. 

„Hann er vonsvikinn en hann er í lagi,“ sagði Ten Hag er hann var spurður hvort hann hefði heyrt í Antony.

Ten Hag fékk einnig spurningar um Harry Maguire, fyrrverandi fyrirliða United. sem hefur verið harðlega gagnrýndur undanfarna mánuði, svo mjög að Gareth Southgate, þjálfari enska landsliðsins, fékk nóg og tók til varna fyrir sinn mann.

Ten Hag hjó í sama knérunn á blaðamannafundinum í dag. „Ég hef margoft sagt að þetta sé vanvirðandi. Hann á þetta ekki skilið. Hann er frábær leikmaður og hefur margoft spilað frábærlega,“ sagði Hollendingurinn. 

„Hann þarf að reyna að útiloka þetta með því að standa sig. Þetta á ekki rétt á sér. Hann hefur átt flottan feril og á enn nóg eftir.“

United tekur á móti Brighton í 5. umferð ensku úrvalsdeildarinnar á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×