Loksins unnu Skytturnar í Guttagarði

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Skotið sem tryggði stigin þrjú.
Skotið sem tryggði stigin þrjú. EPA-EFE/PETER POWELL

Arsenal var mikið betri aðilinn en gekk illa að brjóta niður vörn heimamanna. Gestirnir komust yfir í fyrri hálfleik en markið var á einhvern undraverðan hátt dæmt af vegna rangstöðu þó svo að boltinn hafi farið af leikmanni Everton.

Þá urðu Skytturnar fyrir höggi þegar Gabriel Martinelli fór meiddur af velli. Það var hins vegar maðurinn sem leysti Martinelli af hólmi, Leandro Trossard, sem reyndist hetja dagsins. 

Hann skoraði eina mark leiksins á 69. mínútu og þar við sat. Lokatölur 0-1 og Arsenal með 13 stig eftir fimm leiki. Everton er á sama tíma með eitt stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira