Enski boltinn

Raya: Ramsdale verður að leggja sig allan fram

Dagur Lárusson skrifar
David Raya og Aaron Ramsdale.
David Raya og Aaron Ramsdale. vísir/GETTY

David Raya, markvörður Arsenal, segir að Aaron Ramsdale verði að leggja sig allan fram fyrir liðið fái hann tækifæri til þess á ný.

David Raya, sem var keyptur til Arsenal frá Brentford í sumar, hefur verið í byrjunarliðinu síðustu tvo leiki liðsins en á undan því hafði Ramsdale byrjað hvern einasta deildarleik Arsenal síðan í mars 2022.

„Ef Ramsdale kemur aftur inn í byrjunarliðið þá þarf hann auðvitað að leggja sig allan fram fyrir liðið,“ byrjaði David Raya að segja er hann var spurður út í málið eftir leik Arsenal gegn PSV í gærkvöldi.

„Þetta er ekki mín ákvörðun heldur er þetta ákvörðun stjórans. Ég held að þetta sé í fyrsta sinn þar sem tveir heimsklassa markmenn séu í sama liði en þannig er fótboltinn orðinn,“ hélt Raya áfram að segja.

„Stjórinn vill tvo góða leikmenn fyrir hverja einustu stöðu og við þurfum að vinna með því,“ endaði David Raya á að segja.


Tengdar fréttir

Raya mættur til Arsenal og mun veita Ramsdale samkeppni

Markvörðurinn David Raya er mættur til Arsenal á láni frá Brentford. Raya verður á láni út tímabilið, en Skytturnar hafa möguleika á því að kaupa leikmanninn að lánstímanum loknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×