Ódýrasta tryggingafélagið á hlutabréfamarkaði sé „líklega“ TM
![TM er í eigu Kviku. „Það var því lítilsháttar rekstrarbati í tryggingarrekstri þrátt fyrir mjög erfiðar markaðsaðstæður,“ segir í hlutabréfagreiningu.](https://www.visir.is/i/ED60F027141E93E3364BB85F680F5C5CAA6C6C0C04C1E3E394A9982E1AA3A8A6_713x0.jpg)
Markaðsvirði Sjóvár og VÍS er næstum tvöfalt á við bókfært virði eigin fjár á meðan fjárfestar verðleggja Kviku, sem á TM, á tæplega bókfært eigið fé. „Þetta er sérstaklega athyglisvert því að rekstur TM er stór hluti“ í rekstri bankans, segir í hlutabréfagreiningu, og TM sé því „líklega“ ódýrasta tryggingafélagið á markaðinum.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/2263AB2FB9EE84D03AC25ADE80EC48DB0F1A4C389608877F5C92C90F034F006A_308x200.jpg)
Hagnaður Kviku eignastýringar minnkaði um nærri tvo þriðju milli ára
Afkoma Kviku eignastýringar, sem er í eigu samnefnds banka, versnaði verulega á fyrstu sex mánuðum ársins frá fyrra ári samhliða erfiðum aðstæðum á fjármálamörkuðum. Samanlagður hagnaður fjögurra stærstu sjóðastýringarfélaga landsins minnkaði um liðlega tíu prósent á tímabilinu.
![](https://www.visir.is/i/D40CF87F530B3E66E407730D7142364CDE9F29E04FA930CCB49EF9594B1169F4_308x200.jpg)
Kvika ræðst í hagræðingu og segir upp á annan tug starfsmanna
Innan við einum mánuði eftir innkomu Ármanns Þorvaldssonar sem nýs bankastjóra Kviku hefur bankinn ráðist í uppsagnir þvert á svið samstæðunnar. Stöðugildum innan bankans var þannig fækkað um liðlega fjögur prósent í aðgerðum dagsins í dag sé tekið mið af heildarstarfsmannafjölda félagsins, samkvæmt upplýsingum Innherja.
![](https://www.visir.is/i/595A7DBF9CC621B39D998AD1835933B1F256589A3E4D8BB6A97397DCD0A1CD77_308x200.jpg)
Forstjóri Kviku mun ekki hafa frumkvæði að sameiningu við stóran banka
Nýr bankastjóri Kviku hefur ekki hug á því að endurvekja samrunaviðræður við Íslandsbanka og telur að sameining við einn af stóru bönkunum myndi kalla á yfirtökuálag fyrir hluthafa Kviku miðað við núverandi markaðsgengi eigi það að vera raunhæfur kostur, segir hann í viðtali við Innherja. Bankinn mun í framhaldinu jafnframt ekki eiga frumkvæði að því að skoða viðræður við Arion eða VÍS en forstjóri Kviku segist vilja fara í öfluga samkeppni við stóru viðskiptabankanna.