Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn á miðlægri rannsóknardeild lögreglu, staðfestir fundinn. Hann segir málið á frumstigum rannsóknar og lögregla geti ekki tjáð sig frekar að svo stöddu.

Lík ungrar konu fannst í sjónum við smábátahöfnina við Ingólfsgarð í Reykjavíkurhöfn í morgun. Lögreglu barst tilkynning um málið á tíunda tímanum.