Enski boltinn

„Ég horfi mikið á Salah og Mbappe“

Dagur Lárusson skrifar
Noni Madueke í leik með Chelsea
Noni Madueke í leik með Chelsea

Noni Madueke, leikmaður Chelsea, segist líta upp til þeirra Mohamed Salah og Kylian Mbappe.

Noni Madueke spilar einnig fyrir enska u-21 landsliðið en hann tvö mörk í 9-1 sigri liðsins á Serbíu í vikunni. Hann segist ólmur vilja sýna sínar bestu hliðar og komast í byrjunarlið Chelsea.

„Leikgreinandinn okkar hefur klippt saman fullt af myndböndum af Salah og Mbappe sem ég horfi mikið á,“ byrjaði Madueke að segja.

„Hvernig þeir elta sendinguna sína alltaf inn í vítateiginn eða hvernig þeir búast alltaf við því að fá boltann frá liðsfélögum sínum. Ég verð að bæta ákveðnum hlutum við minn leik eins og auðveld mörk sem svona leikmenn skora einnig mikið af,“ hélt hann áfram að segja.

„Það er það sem ég er að reyna að bæta. Ég veit að ég er með mikinn hraða en það þýðir einnig að stundum þarf ég að hægja á mér, anda rólega og einbeta mér að því að koma boltanum auðveldlega yfir línuna,“ endað Noni Madueke á að segja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×