Stúlkan var að leika sér á skólalóð nærri heimili sínu á höfuðborgarsvæðinu í gær þegar hún hitti þar stráka sem hún þekkti.
„Drengurinn hendir sem sé framan í hana stíflueyði. Þessi ákveðni hópur hafði verið að kaupa þennan stíflueyði sem þeir blanda saman við vatn og búa til svona sprengju einhvers konar en í þessu tilfelli var ekki þessari sprengju hent framan í andlitið á henni heldur eingöngu duftinu sem þeir voru með í poka.“
Stíflueyðirinn sem strákarnir voru að nota var í duftformi. Hún segir stúlkuna strax hafa leitað sér aðstoðar.
„Hún fer í næsta hús þarna við þar sem að árásin átti sér stað og mér skilst að fólkið þar hafi brugðist hárrétt við og hellt sem sagt mjólk í augun á henni og vatni þannig að þau skoluðu þetta strax úr. Mér skilst að það hafi í rauninni bjargað sjóninni hennar. Þannig að þetta er mjög alvarlegt mál þegar svona er. Auðvitað veit maður ekki hversu mikið þeir gera sér grein fyrir því.“
Stúlkan er með brunasár í andliti en hlaut ekki varanlegan skaða af. Svo virðist sem árásin hafi verið tilefnislaus og segir Guðrún drengina hafa verið að herma eftir athæfi sem þeir sáu á netinu. Lögreglan sjái slíkt sífellt oftar gerast.
„Þeir höfðu sem sagt lært þetta á Youtube og voru búnir að gera þetta nokkrum sinnum á víð og dreif.“
Málið er í rannsókn hjá lögreglunni og þá var barnavernd tilkynnt um það. Guðrún segir mikilvægt að foreldrar fylgist vel með því sem börnin séu að skoða á netinu.
„Þarna erum við að tala um ellefu ára gömul börn og við þurfum náttúrulega að vera mjög vakandi hvað börnin eru viðhafa inni á samfélagsmiðlum. Það er náttúrulega fyrst og fremst mjög nauðsynlegt að gera það.“