Enski boltinn

Everton væri fyrir ofan Liverpool ef farið væri eftir xG

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mohamed Salah í baráttu við Everton mennina Vitaliy Mykolenko og Dwight McNeil.
Mohamed Salah í baráttu við Everton mennina Vitaliy Mykolenko og Dwight McNeil. Getty/Visionhaus

Það er eitt að skapa sér færi og annað að nýta þau. Það getur auðvitað skipt öllu máli í fótbolta. Enska úrvalsdeildin birti stöðuna í deildinni ef að liðin hefðu nýtt færin sín í leikjunum.

Leikgreining í fótbolta snýst núna mikið í kringum xG tölfræðiþáttinn yfir áætluð mörk. Fólk er að leika sér með þessar tölur og reikna meðal annars út hvernig leikirnir hefðu átt að fara ef liðin hefðu nýtt færin sín.

Tölfræðin um xG tekur mið af því hversu góð færi liðin eru að fá og hvað sagan segir okkur að séu miklar líkur á marki við sömu aðstæður.

Enska úrvalsdeildin setti inn stigatöfluna eins og hún er í dag og svo við hliðina töfluna ef farið væri eftir útkomu hvers leiks út frá niðurstöðunum úr Xg. Það má sjá þær hér fyrir neðan.

Manchester City er bara í þriðja sæti í deildinni en væri á toppnum ef farið væri eftir sköpuðum færum. Topplið Tottenham væri aftur á móti bara í sjöunda sætinu.

Newcastle liðið hefur heldur ekki haft heppnina með sér því liðið myndi hoppa upp um sex sæti ef það væri farið eftir xG tölfræðinni. Newcastle ætti að vera í öðru sæti út frá sköpuðum færum í þeirra leikjum.

Annað sem vekur athygli er staða Everton. Everton er aðeins í sextánda sæti deildarinnar í dag en væri í fimmta sætinu út úr frá Xg úrslitum. Liverpool sæti þannig neðar en nágrannar sínir samkvæmt þeirri tölfræði og tveimur sætum neðar en þeir eru í dag.

Chelsea er líka annað lið sem hefur farið illa með færin sín og ætti í raun að vera í fjórða sæti í stað þess að vera í ellefta sætinu. West Ham er aftur á móti sjö sætum ofar í töflunni í dag en liðið ætti að vera út frá sköpuðum marktækifærum.

Þrjú neðstu lið deildarinnar, Burnley, Bournemouth og Sheffield United, eru í fallsætunum á báðum listum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×