Enski boltinn

Rodri snúinn aftur | Bæði lið gera markvarðabreytingar

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Rodri hefur ekki spilað síðustu þrjá leiki vegna leikbanns.
Rodri hefur ekki spilað síðustu þrjá leiki vegna leikbanns. Vísir/Getty

Pep Guardiola og Roberto de Zerbi hafa tilkynnt byrjunarlið sín fyrir slag Manchester City gegn Brighton í 9. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. 

Stefan Ortega ver mark heimamanna í stað Ederson. Miðjumaðurinn Rodri er kominn aftur í byrjunarlið Manchester City eftir að hafa verið í leikbanni síðustu þrjá deildarleiki. 

John Stones hefur ekki byrjað einn leik með Man. City á tímabilinu vegna meiðsla en spilaði rúman klukkutíma með enska landsliðinu gegn Ítalíu í vikunni og verður í byrjunarliðinu í dag. 

Jason Steele er kominn aftur í mark Brighton, auk þess kemur James Milner inn í hægri bakvörðinn. Þeir eru enn án bakvarðanna Tariq Lamptey og Pervis Estupinan, góðu fréttirnar úr herbúðum Brighton eru þær að Jakub Moder sneri aftur til æfinga með liðinu í vikunni eftir að slitið krossband í apríl 2022 og gengist undir tvær skurðaðgerðir síðan. 

Kairu Mitoma dróg sig á dögunum út úr landsliðsverkefnum Japan vegna veikinda en er mættur í byrjunarlið Brighton fyrir leik dagsins.

Byrjunarlið Man. City                                                        

Stefan Ortega

Kyle Walker (f), John Stones, Manuel Akanji, Josko Gvardiol

Bernardo Silva, Rodri

Phil Foden, Julian Alvarez, Jeremy Doku

Erling Haaland

Byrjunarlið Brighton 

Jason Steele

James Milner, Lewis Dunk (f), Igor Julio, Solly March

Simon Adingra, Pascal Gross, Carlos Baleba, Kairu Mitoma

Danny Welbeck, Joao Pedro 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×