Þá fjöllum við um stunguárásir á höfuðborgarsvæðinu í nótt og alvarlega stöðu sem komin er uppi í íslenskum landbúnaði. Framkvæmdastjóri Bændasamtakanna kallar eftir tafarlausum stuðningi ríkisstjórnarinnar og segir íslenskan landbúnað standa frammi fyrir algjöru hruni. Hún hefur áhyggjur af áhuga erlendra einkaaðila og segir hættu á að þeir sölsi undir sig íslenskan landbúnað.
Við segjum líka frá rannsókn á andláti vísindamanns í Barcelona og förum yfir þétta dagskrá á Vökudögum á Akranesi, sem hefjast í vikunni.