Enski boltinn

Allar stoðsendingar Núnez fyrir Liverpool hafa verið á Salah

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Darwin Núnez og Mohamed Salah fagna marki þess síðarnefnda fyrir Liverpool gegn Everton.
Darwin Núnez og Mohamed Salah fagna marki þess síðarnefnda fyrir Liverpool gegn Everton. getty/Robbie Jay Barratt

Darwin Núnez og Mohamed Salah ná einkar vel saman hjá Liverpool. Tölfræðin sýnir þetta bersýnilega.

Núnez kom inn á sem varamaður og lagði upp seinna mark Liverpool gegn Everton fyrir Salah á laugardaginn.

Þetta var áttunda stoðsending Núnez í búningi Liverpool síðan hann kom til liðsins frá Benfica í fyrra. Það merkilega er að allar þeirra hafa verið á Salah.

Auk stoðsendinganna átta hefur Núnez skorað nítján mörk í 53 leikjum fyrir Liverpool. Fjögur þeirra hafa komið á þessu tímabili.

Salah skoraði bæði mörk Liverpool gegn Everton og er kominn með átta mörk í ellefu leikjum í vetur.

Liverpool er í 3. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með tuttugu stig eftir níu leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×