Enski boltinn

Postecoglou: Við munum verða betri

Dagur Lárusson skrifar
Ange eftir leikinn gegn Fulham.
Ange eftir leikinn gegn Fulham. Vísir/getty

Ange Postecoglou, þjálfari Tottenham, segir að liðið sitt muni bara verða betra eftir því sem líður á tímabilið.

Tottenham hefur farið frábærlega af stað á tímabilinu undir stjórn Ange en liðið situr á toppi ensku úrvalsdeildarinnar með 23 stig, tveimur á undan City í öðru sætinu.

„Það er sanngjarnt að segja það að byrjunin á tímabilinu hefur verið mjög góð og í raun sérstaklega góð þar sem fólk bjóst ekki við miklu af okkur,“ byrjaði Ange að segja.

„Fólk horfir á okkur núna og okkar leiki útfrá forvitni heldur en útfrá nokkru öðru. Útfrá mínu sjónarhorni þá hafa úrslitin auðvitað verið frábær en ég hef einnig verið mjög ánægður með frammistöður okkar í hverri viku.“

„Seinni hálfleikurinn í dag var samt sem áður líklega það versta sem ég hef séð frá okkur hingað til en það þýðir að við getum lært. Við munum bara verða betri eftir því sem líður á tímabilið, ef við erum ekki betri en þetta í lok tímabilsins verð ég mjög svekktur,“ endaði Ange Postecoglou að segja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×