Í tilkynningu frá almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra segir að íbúar séu hvattir til þess að huga að lausa- og innanstokksmunum sem geti fallið við jarðskjálfta og huga sérstaklega að því að ekki geti fallið lausamunir á fólk í svefni.
Stærsti skjálftinn mældist klukkan 8:18 og var 4,5 að stærð og sá næststærsti varð klukkan 5:35 og mældist 3,9 að stærð.
„Veðurstofa Íslands hefur einnig vakið athygli á því að grjóthrun og skriður geti farið af stað í brattlendi og því er gott að sýna aðgát við brattar hlíðar.
Óvissustig almannavarna þýðir að aukið eftirlit er haft með atburðarás sem á síðari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar verði ógnað. Að lýsa yfir óvissustigi er hluti af verkferlum í skipulagi Almannavarna til að tryggja formleg samskipti og upplýsingagjöf á milli viðbragðsaðila. Á óvissustigi fara viðbragðsaðilar og stofnanir yfir áætlanir sínar og viðbúnað,“ segir í tilkynningunni.